Það er nauðsynlegt að nota grímuna rétt, annars gerir hún ekkert gagn og veitir falskt öryggi.
Gríman þarf að hylja bæði munn og nef til að stöðva dropasmit.
Einnota gríma dugar í þrjá til fjóra tíma, eða þar til hún er orðin rakamettuð. Þá þarf að henda henni og setja upp nýja. Margnota grímur þarf að þvo minnst daglega.
Það er mikilvægt að snerta grímurnar sem minnst og þvo hendur eða sótthreinsa eftir snertingu.
Þannig koma grímurnar að mestu gagni.
Á öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, s.s. kennslu, fyrirlestrum og kirkjuathöfnum þarf að tryggja 1 metra nálægðarmörkin á milli fólks sem er ekki í nánum tengslum.
Andlitsgrímur skal nota þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðarmörk svo sem á söfnum, í verslunum, heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi. Andlitsgríma skal hylja nef og munn.
Við erum öll almannavarnir