Munnvatnssýni til greiningar COVID-19 eru í flestum tilfellum óásættanleg
Í fréttum undanfarið hefur borið á fullyrðingum þess efnis að foreldrum barna standi til boða að tekin verði munnvatnssýni til greiningar COVID-19 í stað nefkokssýnis.
Þetta er ekki allkostar rétt af þeim ástæðum að munnvatnssýni er miklu óáreiðanlegri sýni en nefkokssýni bæði þegar um er að ræða hraðgreingarpróf og PCR próf.
Í undantekningartilfellum er hægt að sætta sig við munnvatnssýni til greiningar en það á að vera algjör undantekning. Ákvörðum um slíkt verður að vera sameiginleg ákvörðun sýnatökufólks og foreldra.
Sóttvarnalæknir.