Frá sóttvarnalækni

08.12.2021

Fjöldi þeirra sem greinist með COVID-19 á Íslandi minnkar hægt en minnkar þó.

Nýgengi COVID-19 hefur minnkað hægt og bítandi undanfarna daga og vikur. Hins vegar eru enn að koma upp hópsýkingar hér og þar sem hægja á þeirri fækkun sem við erum að vonast eftir. Nokkrar hópsýkingar hafa komið upp í tengslum við standandi jólahlaðborð og er fyllsta ástæða til að hvetja alla til að afleggja standandi hlaðborð en afgreiða þess í stað gesti í sæti. Einnig eru hópsmit að koma upp hjá fólki sem dregið hefur að fara í sýnatöku og er því enn og aftur ástæða til að hvetja alla sem eru með einkenni sem bent geta til COVID-19 að fara í PCR próf og halda sig til hlés þar til niðurstaða liggur fyrir.

Enn fjölgar þeim sem greinast með ómíkron afbrigði kórónaveirunnar.

Í dag hafa alls 20 manns greinst hér á landi með ómíkron afbrigði kórónaveirunnar. Þessi smit tengjast ferðum frá útlöndum, Nígeríu, Danmörku, Írlandi og Þýskalandi. Innanlandssmit af völdum afbrigðisins tengjast enn sem komið er einungis smiti frá Nígeríu.

Af þessum 20 þá eru 18 full bólusettir með tveimur skömmtum og tveir höfðu fengið örvunarskammt. Enginn er alvarlega veikur enn sem komið er.

Það er ljóst að ómikron afbrigðið hefur dreifst víða og líklegt að það fyrir finnist í flestum löndum. Enn er ekki hægt að fullyrða hvort það valdi alvarlegri einkennum en delta afbrigðið og á þessari stundu er ekki ljóst hvort þeir sem fengið hafa COVID-19 eða verið bólusettir séu verndaðir gegn smiti.

Þar sem að delta afbrigði kórónaveirunnar er enn í miklum meirihluta hér og erlendis þá er mikilvægt að allir mæti í bólusetningu og þiggi jafnframt örvunarskammt. Ávinningur af bólusetningu og sérstaklega örvunarskammti er óvíræður.

Sóttvarnalæknir

Til baka á forsíðu